Ljósglæta í þokumóðu sauðfjárstyrkja
Í ljós hefur komið að landnýtingarþáttur gæðastýringar í sauðfjárrækt er ekki að virka. Hér er grein í Kjarnanum sem skýrir þetta nánar.
Þar er einnig minnst á að nú eru að skapast tækifæri til raunverulegra breytinga með verkefninu GróLind og vinnu að nýrri reglugerðum sjálfbæra landnýtingu.
Landvernd og ÓA skrifuðu bréf til Landgræðslunnar og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis (desember 2020) þar sem óskað var eftir svörum um hvernig stjórnsýslan hygðist bregðast við ábendingum um að kerfið væri meingallað. Svörin eru vægast sagt þokukennd.
Bréfið er birt í heild hér. Svör frá Landgræðslunni (janúar 2021) og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti (febrúar 2021). Hér er einnig að finna skýrslu umhverfisráðherra til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna þingsályktunartillögu sem sömuleiðis varðaði hinn mislukkaða landnýtingarþátt gæðastýringar í sauðfjárrækt (desember 2020). Ansi keimlík og óskýr svör.
Mars 2021.